Ég Á Mínar Óskir Poem by Peter S. Quinn

Ég Á Mínar Óskir



Ég á mínar óskir
ég á mínar þrár
kannski rætast vonir
eða hljótast sár

alla tíð ég unni
aðeins einni þrá
annað ég ei kunni
það er af og frá

oftast mínar óskir
eins og himinn blár
verða oft af engu
aðeins tilvist grá

Ég á mínar óskir
ég á mínar þrár
stundin styttist fyrr
streyma fram mín ár

COMMENTS OF THE POEM
READ THIS POEM IN OTHER LANGUAGES
Close
Error Success